Gistihús og tjaldstæði

Á Steinsstöðum er rekin fjölbreytt ferðaþjónusta. Þar er gistiheimili, tjaldstæði og sumarhús. Gistiheimilið er staðsett í hlýlegu og fallegu umhverfi, með trjágróðri og skemmtilegum gönguleiðum. Leikvöllur fyrir börnin, lítill 9 holu golfvöllur fyrir áhugamanninn og sundlaug með heitum potti er á svæðinu. Boðið er upp á morgunmat, hádegismat og kvöldmat eftir óskum hvers og eins, ef pantað er með fyrirvara.

Gistiheimilið

Gistiheimilið Borðstofa sem rúmar 45 manns Tveggja manna herbergi Setustofa með sjónvarpi

Gistiheimilið er gamall, uppgerður skóli. Þar eru 16 herbergi (þar af 6 með snyrtingu), borðstofa, setustofa og eldhús. Herbergin eru frá 2-4 manna og frí internet-tenging er á staðnum.

Fjósið

Fjósið Fjósið Tveggja manna herbergi með snyrtingu Þriggja manna herbergi með snyrtingu

Fjósið er gamalt útihús sem er nýuppgert. Þar eru núna 7 herbergi og tveir salir. Annar salurinn rúmar 70 manns og hinn 100 manns. Eldunaraðsta er til staðar í sölunum.

Sumarhúsið

Sumarhúsið Borðstofa Svefnherbergi Eldhús

Sumarhúsið er nýuppgert, gamalt og notarlegt sumarhús. Húsið er 2-3 manna með borðstofu, svefnherbergi, snyrtingu og eldunaraðstöðu.

Tjaldstæðið

Tjaldstæði Tjaldstæði Tjaldstæði að austan til Tjaldstæði

Tjaldstæðið er stórt, skjólgott og á góðum stað með útsýni yfir Mælifellshnjúk. Boðið er upp á þjónustu fyrir húsbíla, svo sem rafmagn, losun, heitt og kalt vatn og þvottaplan. Við hliðina á tjaldstæðinu er snyrting, eldunaraðstaða og matsalur.

Verðskrá

Sumarið 2011

Flokkur 1

Herbergi

Flokkur 2

Herbergi með handlaug

Flokkur 3

Herbergi með snyrtingu

Flokkur 4

Óuppbúið Herbergi

1 manns herbergi 10.400 kr. 7.500 kr.
2ja manna herbergi 11.000 kr. 9.000 kr.
3ja manna herbergi 13.100 kr. 13.500 kr.

Upplýsingar í símum: 453-8812, 899-8762 eða í netfangi steinstadir@simnet.is

þessi verð eru miðuð við uppbúin rúm og morgunverð.