Þjónusta
Á Steinsstöðum er rekin fjölbreytt ferðaþjónusta. Gistiheimilið er á tveimur hæðum. Á efri hæðinni er setustofa með sjónvarpi og svo er eldunaraðstaða bæði uppi og niðri. Á neðri hæðinni er borðstofa sem rúmar 35-40 manns.
Í gistiheimilinu eru 16 herbergi þar af 6 með snyrtingu. Herbergin eru frá 2-4 manna. Hægt er að velja um svefnpokagistingu eða uppbúið rúm.
Boðið er upp á morgunmat, hádegismat og kvöldmat eftir óskum hvers og eins, ef pantað er með fyrirvara.
Á svæðinu er Tjaldstæði, sundlaug og lítill 9 holu golfvöllur fyrir áhugamanninn.