Tjaldstæði og sundlaug
Tjaldstæðið er staðsett fyrir neðan Félagsheimilið Árgarð og þar er einnig sundlaug staðarins.
Boðið er upp á þjónustu fyrir húsbíla, svo sem rafmagn í húsbíla og losun húsbíla, heitt og kalt vatn og þvottaplan.
Tjalstæðið er rúmgott og á góðum stað með útsýni yfir Mælifellshnjúk.
Við hliðina á tjaldstæðinu er þjónustuhús, þar er eldunaraðstaða og aðstaða til að borða inni.
Einnig er tjaldstæði austan við gistiheimilið, inni í rjóðri á skjólgóðum stað.
Nokkrar svipmyndir af þjónustuhúsinu, tjaldstæðinu og sundlauginni.




______________________________________________________________________